dýrt hráefni - en.... samt...

Fór í Hagkaup í gær til að versla hitt og þetta í matinn. Þurfti mest á að halda ýmislegt af fersku grænmeti. En æ hvað ég verð alltaf fyrir vonbrigðum. Ég reyni virkilega að vera jákvæð því það er mikið úrval, já já. EN - gæðin. Ég segi eins og Soffía frænka, suss og svei. Hvar á ég að byrja? Passionfruit - ástríðuávöxtur á íslensku. Þeir voru eins og litlar rúsinur í laginu og eflaust uppþornaðir að innan. verða þeir virkilega svona á leiðinni til landsins? Jæja. By the way þá kostaði kg af þeim um 2500 krónur!! Ferskar fikjur - ég þorði ekki að kaupa þær en mikið langaði mér í þær. Þarf að smakka á þeim áður en ég kaupi nokkrar því þær kosta um 2800 kr kg. Allar dökkfjólubláar, og mjúkar í viðkomu. Æ - ég þorði ekki. Þá var það að skoða kiwi. Kiwi sem er annað hvort grjóthart viðkomu eða eins og mauk í viðkomu hef ég engan áhuga á - sorry. Náði mér í Grasker á 499 kr kg. Það var í lagi með það en auðvitað finnst mér það dýrt.

En, það er mikill munur að geta farið í búð og keypt hitt og þetta sem einu sinni aðeins fékkst í útlandinu. Og þótt að allt sé orðið dýrt hér í matinn þá finnst mér litið gagn að kvarta og kveina undan því - því hvaða tilgangi þjónar það?? En friðar mann eitthvað samt að bulla um það.

Verslaði grasker, ferskt kóriander (dýrt auðvitað!!) og engifer. Þannig að í dag varð graskerssúpa með engiferi í matinn, nýbakaðar brauðbollur sem meðlæti. Og í brauðbollurnar hendi ég svona  það sem mér dettur í hug í degið. Ramminn er 6 dl af vökva og 3 tsk af þurrgeri og hveiti eftir þorfum. Olía, smá hunang, hafrar eða heilhveiti og já það sem er til. Virkar alltaf vel. Prufaði nýja tegund af súkkulaðiköku sem varð í lagi. En með henni gerði ég rababaramauk og það passaði alveg frábærlega vel við. Mjög skemmtilegt bragð þarna sem var í senn súrt og sætt og mjúkt. Það er dásamlegt að setja mat í munninn þar sem brögðin koma fram í mismunandi lögum - skiljið þið??

Þar til næst - eldið með hjartanu!! Borgar sig alltaf!!

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gott að tuða, það er bara þannig.  En hvað ég skil þig samt, hér er alltaf alveg svakalega gott úrval af grænmeti og ávöxtum á frábæru verði og alltaf brakandi ferskt, nema kannski í búðunum

Knús á ykkur og hlakka til að kíkja í kaffi.  (eins gott að það verði eitthvað með því) tíhí.

Rósa (IP-tala skráð) 1.11.2009 kl. 21:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband