whistling spider á hurðarhúninum.....

 

Ok, núna veit ég ekki hvort ég get meira.

Ég hélt sko að ég væri svoooo tilbúin að hitta þessi kvikindi en reyndin er önnur. Var að koma heim eftir að hafa labbað með krakkana í skólan og var að opna nethurðina, sem er fyrsta hurðin inn í húsið hér. Þegar ég fer að loka henni fannst mér eins og eitthvað datt á mig og ég bara GARGAÐI.. á hurðahúninum var þetta kvikindi  - sjá mynd.

Vitið þið, ég missti vitið og hljóp gargandi yfir til Maríu og kallaði á hana... María!! María!! Hjálp!! Hún kom hlaupandi, og skoðaði mig alla og sá ekkert á mér og tók svo spraybrúsann og kom méð mér.

Hún hló mikið að mér þar sem ég stóð með hnakkahárinn bókstaflega rííísandiiiiii á hausnum og öll hár á handleggjunum rísandi... ég var svoooooo hrædd.... Hún spreyjaði greyið sem datt niður á gólf og svo stappaði hún á það. Sagð'i mér svo að þetta væri ekki hættuleg kóngurló.... En viðurkenndi að þessi væri vel stór.

http://www.austmus.gov.au/factsheets/tarantula.htm

set hér inn link um þennann viðbjóð ef þið hafið áhuga að lesa um hvað ég var hitta. Ég verð að vita hvað það er sem ég sé hérna því það gerir mig ef eitthvað aðeins öruggari með skordýrin hérna...

gæsahúðarkveðjur frá Ozzie....


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

mamma þú ert hetja !! ojj hún er loðin og allt !

Fía (IP-tala skráð) 31.3.2009 kl. 01:47

2 identicon

úff úff ég er sko sammála Fíu....... þú er sko hetja..... oj oj  ég myndi pakka saman og fara heim

Annars taldi ég mig vera í lagi ................... sko, pöddulega séð sko...... taldi mig geta dílað við allt sem til er..............

þar til ég sá kakkalakka!!!!! stóran feitan og fljótan að hlaupa.......... og ég gargaði þakið af húsinu.............. hljóp í felur og ojojojoj ég fæ enn gæsahúð við tilhugsunina..... og ekki eru þeir hættulegir heilsunnni eins og kóngulær geta verið.... jedúddamí.  Knús í tætlur á alla gæsahúðina.

Rósa (IP-tala skráð) 1.4.2009 kl. 09:10

3 identicon

Shjitt ég segi nú ekki annað ég hefði fengið hjartaslag !!

Ragga (IP-tala skráð) 1.4.2009 kl. 13:06

4 identicon

ooooooooj  ég hefði farið yfir um... það er sko rétt hjá Fíu þú ert Hetja.... þú ert sko klárlega stórasystirin sem getur allt...  knús kreist kremj

Elsa (IP-tala skráð) 1.4.2009 kl. 18:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband