22.12.2008 | 12:51
jólin koma......
´Jæja.
Núna er reyndar eflaust greinilegt að Fía er komin þar sem engin bloggfærsla hefur verið skráð síðan hún kom. Hmm... En þannig er það. Það hefur verið nóg að gera síðan hún kom þessi elska. Við þurftum að bíða velog lengi eftir henni og þegar allir farþegar voru komnir út nema hún varð ég orðin mjög óróleg og ætlaði að fara að spyrjast um hana. Þá birtist hún - og málið var að ferðataksann hennar fór í einvherjar villileiðir... Já svona er þetta að ferðast um hálfan heiminn..
Húnvar þreytt og búin aðstanda sig svoo vel, enda gekk ferðalagið eins og í sögu hjá henni. Síðan hún kom hefur verið mikið sofandi - eflaust að ná svefni eftir að hafa verið vakandi heilu og hálfu næturnar... Hmmrmm.. En við skelltum okkur á tónleika með Alicia Keys, og það var EKKI leiðnilegt. Hún var stórkostleg konan. Endilega kikið á myndirnar af henni inn á myndasíðunni.
Svo höfum við verið að slæðast á ströndinni og látið okkur líða vel þar, við höfum verið á kaffihúsum og hlegið saman a öllu fyndna fólkinu sem er til hérna. Ég elska það þegar það gengur einhver stórfurðuleg hárgreiðsla framhjá og við lítum svo báðar á hvort annað og hlæjum... haahha, ég klippit sko EKKI þessa.. hahahha...
Og núna eru jólin komin til okkar. Það er mjög óraunverulegt, því ekkert er eins og það á að vera hjá okkur. En erum búin að skreyta tréið, gjafirnar eru komnar, við G förum og kaupum i matinn á morgun.. Já, við G erum byrjuð í likamsrækt... Vá og það var eins ogtt - maður hefur sko aðeins verið að bæta á sig hérna... Já það er ekki me´r að kenna...nei nei.. en bjórinn er sko svaka góður hérna.. og líka kökurnar... og líka svo margt annað.... 'upss.. en núna erum við komin í þjálfun og kanski gengur það vel.. vona það... eða það á að gera það... vonandi...
Well, segi bara : gleðileg Jól á ykkur öll þarna heima... söknum ykkar mikið...
Cheers....
og já, nyjar myndir inn á þarna þið vitið....
Athugasemdir
Gleðileg jól elskurnar og hafið það gott um hátíðarnar !!
Stórt knús !!
Ragga og Kamilla Ylfa (IP-tala skráð) 22.12.2008 kl. 22:46
Knús knús á ykkur öll, yndislegt að njóta tímans með stóru stelpunni ...... knús á hana líka
Rósa og Guðný Heiða (Nicole) (IP-tala skráð) 23.12.2008 kl. 10:05
Ég óska ykkur gleðilegra jóla þarna í sólinni Down Under og farsældar á komandi ári. Hlakka til að halda áfram að lesa bloggið frúarinnar!
jólakveðjur
Dísa Kiddasystir (IP-tala skráð) 25.12.2008 kl. 21:27
gleðileg jól á ykkur líka héðan frá okkur öllum..
tedda (IP-tala skráð) 27.12.2008 kl. 09:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.