4.6.2008 | 23:09
hótel í Adelaide
Í dag var afmælisdagur Davíðs og hennar mömmu. Mikil veisla á hinum ljúfa veitingastað Tilveran sem er í Hafnarfirði.
Er loksins búin að bóka hótel fyrir okkur í adelaide frá I ágúst. Dásamlegt hótel sem er við ströndina í hverfi sem heitir Glenelg og er víst mjög fallegt þar. Þar njótum við lifsins eða þanni á meðan við leitum okkur að húsnæði til að fara að búa í. En reyndar ætla ég mér að vera smá í sumarfríi og dóla mér í góðum sólarstól með jafnvel ískalt hvítvin mér við hlíð. Alltaf dásamlegt.
Í dag var líka skólaslit í Meló. Skrýtið að hugsa til þess að börnin eru hætt í Meló. Næst fara þau í skóla í Adelaide :)... Það á eftir að verða mjög mikið öðruvísi.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.